EKKI FARA

Velkominn

06.11.2006 22:06:36 / Gunnar

nokkuð sáttur

Já ég er bara nokuð sáttur með þetta útlit á síðunni minni ætlaa bara að hafa þetta sonna.
En já í dag þá fórum við í próf í samfélagsfræði og mér gekk ÓGEÐSLEGA vel ég er nokkuð viss um að ég fái yfir 9,5 en við sjáum bara til.
Var að horfa á Tekinn þetta var ruddaleg snilldin ein hehe hann bara spreiaði aðeins marr;).
En já svo áðan var æfing og alltaf er jafn ílla mætt á þessar HELV..... æfingar ég bara er ekki nógu og sáttur með það.
En jæja það þýðir nú ekkert að hætta eins og einhver bölvuð kelling bara að halda áfram.
Já svo er prófavika í þessari viku sem er náttúrulega bara BOOOORRINNGGGG.
En nenni ekki að skrifa neitt meira þakka fyrir mig sjáumst í bili blessbless.

K.V GUNNAR                                                 PEACE OUT

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 16:06:02 / Gunnar

þarf hjálp frá ykkur lesendur!

Já eins og kemur fram hér fyrir ofan þá er ég í smá vanda og þarf á hjálp ykkar að halda en þannig er mál með vexti að ÉG VEIT EKKERT HVERNIG SÍÐAN MÍN Á AÐ LÍTA ÚT!!!!!!!.
Það eina sem að þið þurfið að gera er að kommenta og segja hvernig þið viljið hafa síðuna..... þannig að þið eruð núna einskonar stjóra á síðunni en endilega gerið þetta fyrir mig.

Ég hef mjög lítið að segja sem ekki neitt en ég ætla að reyna að segja eitthvað svona til þess að lífga þetta blogg upp.
En já ég var allavegana að koma af æfingu sem var bara mjög góð við tókum leik við stelpurnar og við skulum ekkert fara neitt meira út í það neinei.
Og ég sakna Reykja ÓGEÐSLEGA það var eiginlega bara allt gott og skemmtilegt þar ohhhh bara ef ég væri á Reykjum.
En ég er að hugsa um að stoppa hérna og sægja bæ ég þakka fyrir mig ég blogga aftur á morgun BLESS.

K.V  Gunnar                                        PEACE OUT
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 17:59:28 / Gunnar

RRRRRRRRRReykir.......... GG STUÐ!

Jæja þá er maður kominn heim sem er bæði gott og vont.
Það sem er vont við það að það var svo gaman þarna skólastjórinn Þorri mjög skemmtilegur, Kalli og Kristján kokkar báðir skemmtilegir og það var góður matur hjá þeim marr, nú svo má ekki gleyma skagfirðingnum Kristjáni íþróttakennara, nú svo voru það Halldóra og Ingunn (Ingunn er konan hans Þorra)Halldóra er konan Kalla kokks.
En þetta er bara búið að vera allt of stutt finnst mér :S.
Maður var aldrei aðgerðalaus alltaf á iði hehe.
Já þetta var ábyggilega skemmtilegasta vika OF MY LIFE.
kynntist helling af krökkum eins og Ingvari og Árna ógeðslega hressir og skemmtilegir strákar bara VÁÁ Árni æfir handbolta meira að segja harðu kauði og Ingvar æfir fótbolta þetta eru þeir sem ég svona kynntist BEST.
En ég man ekki eftir neinu í augnablikinu blogga þá bara um það seinna eða þið látið mig vita en bæbæ.


K.V. GUNNAR                                                       PEACE OUT

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 21:46:00 / Gunnar

Gunnar Reykjarfari

Jæja þá er bara einn dagur í Reyki er að deyja úr tilhlökkun :D:D.

En ég er svona eiginlega búinn að taka mig til fyrir þessa ferð.

Já svo þið segið það litlu dúllurnar mínar það er gott.

Ég hef bara ekkert að segja........ jú úrslit úr skoðanakönnuninni.

Það var auðvitað Raggi Bjarna sem allir kusu og það er rétt;).

En meira hef ég ekki að segja þakka fyrir mig veriði sæl ég blogga ekkert næstu vikuna en kem sterkur inn á laugardaginn svo við sjáumst eftir viku.

Já ég blogga ekkert næstu vikuna eins og fyrr kemur fram er ég að fara á Reyki og get ekki bloggað þar svo við sjáumst á Laugardaginn bæbæ.

K.V Gunnar 

PEACE OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 20:30:07 / Gunnar

Æi gleymdi að blogga í gær

Já ég gleymdi að blogga í gær en það sem var eftirminnilegast af gærdeginum voru án efa Magna tóneilkarnir.
En já eins og hefur komið oft fram á þessari síðu var Magni með tónleika í íþróttahúsinu þann 20.okt.
Það var svo geggjað stuð að ég bara missti mig ég var bara að tala við hann á fullu eftir tónleikana.
En ég var alltaf að spurja svona viltu spila Fire,Dolhpins cry og mörg fleiri lög og hann spilaði þau öll.
Svo fékk ég þrjár eiginhandaráritanir og gítarnöglina hans!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!.
En þetta var bara eiginlega allur gærdagurinn minn ég skemmti mér konunglega á tónleikunum.
En núna er spaugstofan að byrja verð að fara takk fyrir mig.


Gunnar........   Magna aðdáandi nr.1                                   PEACE OUT(MAGNI)
MAGNI,MAGNI,MAGNI,MAGNI,MAGNI,MAGNI,MAGNI,MAGNI,MAGNI

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 21:22:03 / Gunnar

HEI HEI

Jæja íslenskan búinn í samræmdu og mér gekk bara alveg frábærlega.
Og stærðfræðin á morgun gangi mér bara vel í henni en ég er bara fulllærður fyrir stærðfræðina.
En já núna vantar 1 uppá til að það skrifi 40 í geztó hver verður sá fertugasti???.
En ég hef verið að pæla gaurinn sem les setningarnar og það í samræmdu prófunum ætli hann tali svona heima hjá sér? 1 Kalli......fór......út.....í.....búð.....að.....kaupa......smjör..... hehe bara svona að pæla?.
En annars hef ég ekki mikið meira að segja þakka fyrir mig.

BÆBÆ Gunnar PEACE OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 16:43:50 / Gunnar

And it's me................. AGAIN!!

Jæja á morgun eru samræmdu prófin og ég er fulllærður fyrir þau sem er gott8).
Já ég ætla bara að rúlla þessu upp ég er staðráðinn í því.
En annars er ég bara að chilla eikkað bara á skólavefnum og sonna.
En já ég vildi bara segja ykkur það að ég ætla ekki að vera dúndra neitt of mikið inná þessa síðu mér finnst alveg nóg að þið lesið bloggið mitt og og skrifið í gestó og ég vill minna á að það vantar bara 2 uppá og þá eru 40. búin að skrifa í gestabókina mína.

En er það ekki allt í lagi að ég bloggi bara og sé ekkert að setja neitt inná síðuna ég meina til hvers?(komment á þetta).

En annars bara takk fyrir mig og bæ.

SE YA........ GUNNAR.......                                    PEACE OUT



» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 18:59:33 / Gunnar

HEY it's just me again

Jæja í dag þá vaknaði ég óvenjulega snemma eða klukkan hálf 6......... skrýtið.
En já svo gerði ég morgunverkin og svo fór ég í skólann.
Þar var í fyrsta tíma UF (uppskeruhátíð fjölíða) sem var ógeðslega gaman við í heimilisfræðinni sáum um matinn það voru pizzusnúðar og djús namm namm.
Já og svo eftir það fórum við í upplýsingamennt(bókasafn) og þar vorum við bara eitthvað að gera og svo eftir það fórum við inní stofu og þar var haldin fyrirlestur um sjálfsímynd okkar eða eikkað svoleiðis.
Já og svo......... hvað vorum við að gera svo??????? ég man það ekki.
En já svo fór ég í norsku tíma og svo heim.
Já og síðan fór ég bara eikkað í tölvuna og út í fótbolta og svo aftur í tölvuna að blogga sem ég er að gera núna.
Svo já þetta var nokkurnveginn dagurinn hjá mér:haha: takk fyrir mig og BÆBÆ.


K.V Gunnar                                                               PEACE OUT


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 17:44:02 / Gunnar

Hæhæ

Jæja ég hef nú frá litlu að segja en fyrst og fremst vill ég þakka Írisi og Rakeli Rós fyrir að skrifa í gestó og þess má geta að Rakel var númer 36 svo það eru bara 4 í 40 svo bara vera dugleg að skrifa í geztó.
En í dag þá vaknaði ég burstaði og borðaði og fór í skólann bara eins og maður gerir venjulega er það ekki.
En já við vorum að gera eitthvað í skólanum og svo fórum við heim.

Já og svo vill ég fá komment á þetta er ég duglegur að blogga?

En meira hef ég ekki að segja svo bara bæ.


K.V GUNNAR                                                                PEACE OUT



» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 10:25:15 / Gunnar

nýtt met

Jæja nýtt met var sett á síðunni í gær en það komu 38 inná til þess að skoða síðuna mína og ég þakka kærlega fyrir það og tvær skrifuðu í gestabók þær Elísabet og Kristveig ég þakka þeim sérstaklega vel fyrir það.
En á eftir er ég að fara á fótbolta æfingu sem verður ábyggilega bara gaman og svo styttist óðum í Reyki ég held að ég sé að missa andlitið hvað ég er spenntur.
Já og svo eru það samræmdu prófin en eitt sem ég skil ekki af hverju eru samræmdu prófin eitthvað merkilegri en önnur próf þau eru alveg eins nema pínu þykkri og svo kemur þetta ekkert einkununum okkar við bara skil þetta ekki.
Já og svo ætla ég aðeins að fara fínpússa síðuna setja inn myndir og sonna er það ekki flott hjá mér???.
Í gær þá fór ég til ömmu að horfa á fóstbræður sem voru ÓGEÐSLEGA fyndnir.
En ég minni á að forsala aðgöngumiða á Magna tónleikana er hafin á Ábæ en þeir sem ekki vita neitt í neinu um hvað ég er að tala þá er Magni að halda tónleika í íþróttahúsinu 20.okt.
Já og svo ég hafi eitthvað að blogga um þá ætla ég að segja frá gærdeginum í stuttu máli.
Já ég vaknaði fékk mér morgunmat og svo fór ég að blablablablabla.
Já og svo fór ég á æfingu um 5 leytið sem var ógeðslega erfitt fór að hlaupa hljóp 15 km.
Það var mótvindur alla leið og rigning s.s leiðindaveður.
Já svo borðaði ég kvöldmat sem var lamb og appelsín með ummmmm.
En svo fó ég til ömmu eins og ég minntist hér fyrir ofan.
En meira gerði ég nú ekki svo við bara sjáumstum.
BÆBÆ  
K.V GUNNAR                                                               PEACE OUT

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 19:21:59 / Gunnar

hæhæ

Jæja kjéllinn er kominn í bloggstuð bara svona láta ykkur vita.
En í dag þá var ég á 1 klst æfingu og svo fór ég heim bara að chilla.
Já og svo eftir nokkra daga eru Reykir.
En fyrst eru samræmdu prófin.
En meira vill ég ekki segja í bili bæbæ

K.V Gunnar                         PEACE OUT

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 19:18:37 / Gunnar

Kominn í bloggstuð.

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 12:07:24 / Gunnar

er búinn að fá nóg

þessi síða er farinn í frí og kemur sterk tilbaka 7 júlí n.k þangað til lifið heil

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 16:06:11 / Gunnar

Hæhæ

ja vel ja vel ja vel nå har det kommet resultat i om jeg skal blogge på Norsk eller Islandsk og jeg vet ikke om jeg skal blogge igjen på Norsk og Islandsk er litt fortvilet nå jeg.

Det blir litt vanskelig da må jeg altid skrive så mye så jeg tror at jeg blogger på Islandsk neste gang og alle andre gangene.

Det er litt synd men ja for de som ville at jeg skulle blogge på Islandsk og Norsk så kan jeg desverre ikke det.

Men ellers så er det veldig lite som har skjedd bare det at jeg spilte fotball kamp i går som vi tapte 1-2 ikke no mer om det TAKK.

Jæja nú jæja núna eru kominn úrslit í hvort ég á að blogga á bæði íslensku og norsku en ég held að ég geri það ekki það verður allt of erfitt svo ég held að ég bloggi bara á Íslenskunni gömlu og góðu.

Það er vont fyrir þá sem vildu að ég skrifaði á bæði Norsku og Íslensku en ég meina svona er lífið.

En annars er bara lítið búið að gerast hjá mér en ég spilaði fótbolta leik í gær og tapaði 1-2 en ekkert meira um það TAKK.

bæbæ K.V Gunnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 17:04:16 / Gunnar

Úrslit

Jæja þá eru tveir búnir að kommenta ein segir "bæði"

hinn segir "íslensku" endilega kommenta meira.

En já það er svolítið búið að gerast hjá mér þessa helgi og hér er brot af því.

Spilaði fótboltaleik í gær skoraði þar eitt mark og fór síðan meiddur út af sem er ekki gott er að drepast í fætinum.

En svo er ekkert meira búið að gerast bæbæ.

K.V Gunnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan